Olíuslysið mikla á Mexikóflóa sýnir hörmulega umgengni mannkyns við umhverfi sitt. British Petroleum gekk fram af hömlulausri græðgi, sem við höfum séð dæmi um hér á landi síðustu árin. Borað var á sjávarbotni án þess að hafa öryggi í lagi. Því tókst ekki að skrúfa fyrir lekann. Menn vita ekki einu sinni, hvernig á að fara að því. Vesturlönd þurfa að skrúfa fyrir fleira en olíuna. Við þurfum að skrúfa fyrir sjálfa hugmyndafræði græðginnar, sem hefur stjórnað Vesturlöndum um langt árabil. Þar á meðal Íslandi, samanber bankahrunið. Mannkynið er ekki sjálfbært og mun að lokum útrýma sjálfu sér.
