Mamúd Abbas gafst upp

Punktar

Síðan 2005 hefur forseti Palestínu verið í vonlausu hlutverki. Mamúd Abbas reyndi að semja við Ísrael um stöðvun byggða ísraelskra landnema í Palestínu og um Palestínuríki. Fyrir milligöngu vilhallra Bandaríkjanna. Samskipti Ísraels og Bandaríkjanna felast í, að rófan dillar hundinum. Leiddi til, að róttæki Hamas flokkurinn náði miklum meirihluta í kosningunum 2007. Abbas bylti stjórninni 2009 til að halda völdum. Nú er hann búinn að sjá, að allt puðið var árangurslaust. Ísrael veður áfram í taumlausri frekju í skjóli Bandaríkjanna. Hamas er orðinn málsvari Palestínu. Og Mamúd Abbas gafst upp.