Magnaðri afneitun fólks

Punktar

Hverjir hafa grætt og hverjir hafa tapað? Ferlið nær yfir atkvæðagreiðslu Alþingis um IceSave, áskorun á Facebook til forsetans, synjun forsetans og viðbrögð fólks. Í heild held ég, að afneiturum IceSave hafi aukizt kraftur. Davíð var fyrstur, sagðist strax ekki mundu borga og olli hryðjuverkalögum í Bretlandi. Hann er enn sama sinnis. Og Hannes Hólmsteinn segir þetta enn í erlendum fjölmiðlum. Þingflokkur sjálfstæðismanna hleypur úr og í, en mun fylgja skipunum Davíðs, þegar á reynir. Þingmenn Framsóknar æstu sig upp í að afneita IceSave alfarið. Allt þetta hefur magnað afneitunar-áráttu fólks.