Lygnasti og svikulasti

Punktar

Sigmundur Davíð er lygnasti og svikulasti pólitíkus, sem ég hef spurnir af. Um það hef ég rakið ótal dæmi. Erlendis þekki ég ekki hliðstæðu. Alltaf jafn brattur, þótt hann hlaupi um með allt á hælunum. Móðgast, þegar spurt er um sambandsleysi orða og athafna. Býr til sífellt nýja orðaleppa til að fela fyrri orðaleppa. Telur sig ítrekað setja heimsmet. Haldinn sérstæðri útgáfu af andlegum sjúkdómi, sem gerir honum kleift að afneita öllu óþægilegu. Næst setur hann sig í guðatölu að hætti rómverskra keisara. Kjósendur eiga eftir að verða fyrir miklu tjóni, stöðvi Sjálfstæðisflokkurinn ekki harmleikinn.