Losnum við þau öll

Punktar

Ólafur Ragnar Grímsson er sérfróður í pólitískum klækjum, sýndarmennsku og óskammfeilni. Einn pólitíkusa gamla tímans, er við þurfum að losna við. Eins og Jóhönnu og Steingrím. Öll þessi pólitíska kynslóð gamla tímans er okkur gagnslaus og sumpart skaðleg. Ólafur Ragnar er annar af tveim verstu, hinn er Davíð. Þeir eru oddamenn hrunverja, hugmyndafræðingar rangra viðhorfa til lífsins og tilverunnar. Ólafur Ragnar smíðaði fullyrðinguna um eðlislæga ofurhæfni íslenzkra fjárglæframanna. Þurfum að losna við allt blöðrugengið í kosningum að ári. Nema Ólaf Ragnar, við getum losnað við hann núna. STRAX.