Lög fyrir hrædda rasista

Punktar

Svo þrálátur er ótti hræddra rasista við múslima, að ríkið þarf að grípa til öryggisráðstafana. Ekki vegna hættu af múslimum, heldur til að róa óttaslegna fólkið, sem trúir alls konar bulli. Til dæmis mætti setja sérstök lög, sem banna ýmislegt. Svo sem handarhögg, búrkur (ekki slæður), umskurð kvenna, nauðungarhjónabönd, barnaníð og svo framvegis. Hlutir, sem eru bannaðir, en taka þarf sérstaklega fram vegna ísmeygilegs áróðurs rasista. Einnig mætti vera í lögum þessum ákvæði um, að allir útlendir, sem setjast að, verði að fá eintak af lögunum. Vont er, ef hér tryllist múgurinn út af lygum um múslima.