Gott dæmi um leyndarhyggju kerfisins er listi Fjármálaeftirlitsins yfir hættulega bankamenn. Eftirlitið sendi hann bönkunum með óbeinni ósk um, að þeim yrði vikið frá störfum. Listinn er lok lok og læs og bófarnir ganga enn lausir í bönkunum. Gegndu lykilhlutverki í aðdraganda hrunsins. En fólk má ekki vita, hverjir þeir eru. Þetta er sama hugarfarið og það, sem orsakaði hrunið. Fjármál og peningar og tekjur og skuldir og eignir, allt þetta er talið vera einkamál. Torveldar eftirlit samfélagsins með hegðun landsins verstu bófa. Í nýrri stjórnarskrá þarf að hefta siðlausa persónuvernd bófa.
