Lífeyrissjóðir verði þjóðnýttir

Punktar

Framtakssjóður lífeyrissjóða er strax við fæðingu kominn í gamla sukkið, sem einkenndi undanfarna áratugi. Braskar með hlutabréf í Icelandic í þágu vina og ættingja. Þarna sé verið að misfara með fé lífeyrisþega. Framtakssjóðinn verður að stöðva sem allra fyrst. Hann er líka dæmi um, að lífeyrissjóðirnir eru ófærir til falla frá fyrra sukki sínu og spillingu. Löngu er kominn tími til, að þeir verði þjóðnýttir. Á þann hátt, að hver lífeyrissjóður verði sérstök deild í heildar-lífeyrissjóði ríkisins og uppsöfnunarreglan verði óbreytt. Síðan fáum við einhvern útlending til að stýra sparifé landsmanna.