Leyfð og bönnuð líkamstjáning

Punktar

Þingflokkur Framsóknar vill koma skikki á líkamstjáningu á Alþingi. Einkum fer í taugar hans fýlusvipurinn, sem einkennir forseta Alþingis. Þetta er auðvitað grafalvarlegt þingmál. Mikilvægt er að skilgreina betur ýmsa þætti líkamstjáningar og staðsetja þá innan eða utan ramma hins leyfilega. Til dæmis væri frábært að birta myndir af ýmsum útgáfum af glotti Tryggva Þórs Herbertssonar. Sýna, hvenær glottið telst vera leyfilegt bros og hvenær það telst vera bönnuð gretta. Nefnd þingflokkanna getur tekið að sér útfærslu á brýnasta þingmáli Framsóknar, leyfðri og bannaðri líkamstjáningu þingmanna.