Leiðtogi án samráðs

Punktar

Báðir eru þeir hissa, Björgvin Sigurðsson og Össur Skarphéðinsson. Segjast ekki hafa verið á neinum ríkisstjórnarfundi með Davíð Oddssyni snemma á árinu. Segjast hvergi hafa heyrt meintar aðvaranir seðlabankastjórans og engar greinargerðir fengið. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir segir sig og Geir hafa sex sinnum snemma árs setið með bankastjórum Seðlabankans. Umræðuefnið hafi verið erfið staða bankakerfisins. Samkvæmt þessum fréttum miðlaði Ingibjörg Sólrún ekki kreppufréttum til mikilvægara samráðherra, þar á meðal bankaráðherra. Samráðastjórnmál henta henni ekki, þegar á reynir.