Latur formaður

Greinar

Aðgerðaleysi formanns stjórnarskrárnefndar, Hannibals Valdimarssonar, er orðið að meiri háttar hneyksli. Árum saman hefur hann tregðazt við að halda fundi í nefndinni, þrátt fyrir tilmæli annarra nefndarmanna og kröfur fjölmargra, sem telja stjórnarskrána vera orðna gersamlega úrelta í ljósi nútíma aðstæðna. Nokkrum sinnum hefur hann þó haldið fundi, en án sjáanlegs árangurs.

Þó tekur steininn úr, þegar Hannibal kennir almenningi um þennan seinagang, eins og hann gerði opinberlega um daginn. Hann getur ekki ætlazt til, að almenningur hlaupi upp til handa og fóta með tillögur. Hann getur ekki heldur búizt við, að erindi ýmissa stofnana og samtaka til nefndarinnar fjalli um annað en sérsvið þeirra.

Nauðsynlegt gæti reynzt að skipa nýja nefnd með nýjum formanni til að setja kraft í málið.

Jónas Kristjánsson

Vísir