Ásbjörn Óttarsson þingmaður og Helgi Magnús Gunnarsson eru sammála um að kenna látnum endurskoðanda um svindlið. Þingmaður Sjálfstæðisflokksins stal arði úr gjaldþrota fyrirtæki og segist ekki hafa vitað af því. Ásbjörn er einn af mörgum græðgisþingmönnum Sjálfstæðisflokksins, sem tóku þátt í fjárglæfrum hrunsins. Þar fyrir utan er helzta dægradvöl hans að sjá kommúnista í hverju horni. Helgi er einn þeirra, sem Björn Bjarnason réð í lög og rétt til að passa umpp á, að prinsar Sjálfstæðisflokksins yrðu ekki fyrir hnjaski. Er svo slappur lögmaður, að engin mál hans ná fram að ganga.
