Landið verður varið

Greinar

Við hlið efnahagsmálanna voru varnarmálin annað höfuðmál alþingiskosninganna í sumar. Þetta var í fyrsta sinn, sem varnarmálin hvíldu ekki í skugga annarra þjóðmála. Varnarmálin voru í þetta sinn mjög á oddinum í kosningabaráttunni. Fjöldi kjósenda var einkum með þau í huga í kjörklefanum. Í fyrsta sinn var beinlínis kosið um varnarmálin.

Þessi staðreynd átti töluverðan þátt í sigri Sjálfstæðisflokksins, sem tók flokka ákveðnast undir sjónarmið þeirrar fjöldahreyfingar, sem kennd var við Varið land.

Þar við bætist svo hrun flokks herstöðvaandstæðinga, Samtaka frjálslyndra og vinstri manna. Þegar verkalýðsforingjarnir hurfu úr forustu þess flokks fyrir kosningarnar, sat eftir lið, sem átti herstöðvaandstöðuna einkum sameiginlega. Til liðs við það komu svo brotthlaupsmenn úr Framsóknarflokknum og Alþýðuflokknum, svonefndir Möðruvellingar annars vegar og Vinstri jafnaðarmenn hins vegar. Það var fyrst og fremst herstöðvaandstaðan, sem einkenndi þessa nýju liðsmenn. Í kosningunum komu þessi samtök fram sem flokkur herstöðvaandstöðu og fengu herfilega útreið.

Þetta brotthlaup var jafnframt mikil hreinsun fyrir Framsóknarflokkinn og Alþýðuflokkinn. Eftir sátu og styrktust þeir menn, sem hlynntir voru framhaldi hinnar gömlu samstöðu lýðræðisflokkanna í varnarmálunum. Þessi breyting á efalaust mikinn þátt í því, hve auðvelt framsóknarmenn og sjálfstæðismenn áttu með að ná saman í varnarmálunum, þegar unnið var að kaflanum um þau í stjórnarsáttmálanum.

Þessi mikilvægi kafli hljóðar svo:

“Öryggi landsins skal tryggt með aðild að Atlantshafsbandalaginu. Hafa skal sérstakt samstarf við Bandaríkin meðan starfrækt er hér varnar-og eftirlitsstöð á vegum Atlantshafsbandalagsins.

Haldið skal áfram viðræðum um fyrirkomulag varnarmálanna með það fyrir augum, að Keflavíkurstöðin geti gegnt hlutverki sínu í samræmi við öryggishagsmuni Íslands á hverjum tíma.

Stefnt skal að því, að Íslendingar taki við þeim verkefnum af varnarliðinu, sem ekki eru hernaðarlegs eðlis. Öllum aðgerðum.í þá átt skal hraðað svo sem kostur er.

Varnarliðsmenn verði búsettir á vallarsvæðinu strax og aðstæður leyfa. Greina skal á milli starfsemi varnarliðsins á flugvellinum og almennrar flugvallarstarfsemi.”

Af þessum texta er ljóst, að nú verður horfið frá ótímabærri brottför varnarliðsins. Hætt verður við varasama tilraunastarfsemi í hlutleysisefnum á þessum tímum ótryggs öryggis í Evrópu og á höfunum í kring. Landið verður áfram varið í samræmi við vilja meirihluta kjósenda.

Jónas Kristjánsson

Vísir