Krumpuð valdstjórn íslenzk

Punktar

Tek undir með Sigurjóni M. Egilssyni: “Hið opinbera vill fangelsa nokkra mótmælendur. Á sama tíma hefur ekki verið svo mikið sem skert eitt hár á höfði þeirra sem kunna að bera ábyrgð á hvernig komið er. Þeim sem eru kveikja af þeim mótmælum sem urðu. Auðvitað eiga þeir sem brjóta lög að sæta ábyrgð gerða sinna. Auðvitað. Það er samt merkilegt að fyrst skuli fara gegn þeim sem mótmæltu meðan hinir slá hvergi af í ofgnóttinni, búa enn einsog hefðarfólk, aka um á dollaragrínum, eiga enn þau fyrirtæki sem þeir kjósa að eiga og lifa nánast einsog fyrir byltinguna, fyrir krassið og komast upp með það.”