Nokkrir hneykslast á Kléópötru majónes-drottningu og sjálfsauglýsingum hennar. Athuga þó ekki, að hún er systir Silvíu Nætur. Tilraun til að gera grín að Íslendingum. Silvía gerði grín að græðgi og persónudýrkun. Hún var afskaplega 2007 eins og það er orðað núna. Kleópatra gerir grín að pólitík og persónudýrkun. Textar hennar hafa orðið að bitbeini fjölmiðla og bloggs. Menn missa síður úr hjartaslag, ef þeir líta léttúðugum augum á textana. Við þurfum eitthvað af svona fólki, sem skemmtir okkur með því að ganga fram af okkur. Nóg er samt til af fýlu og siðavendni í umræðunni hvurndags.
