Keyrði á steinvegg

Punktar

Sveinbjörg Birna sýndi víðtæka vanþekkingu, þegar hún sagðist örugglega vera eini frambjóðandinn, sem hefði búið erlendis. Lýsti svo aðstæðum í fjarlægum löndum og hafði fengið þær skakkt í hausinn. Var ekki að hugsa um löghlýðnar fjölskyldur og börn, sem sættu óþægindum vegna ofstækis hennar. Var bara að næla í 2000-3000 ódýr atkvæði heimskra, sem eru hræddir við framandi andlit. Þekktir framsóknarmenn sögðu sig úr flokknum, vissu ekki fyrr, að flokkurinn væri lentur í hægri öfgum. Siðblindur Sigmundur Davíð lét sér samt rasismann vel líka. Flokkurinn keyrði á vegg fyrirlitningar annarra, varð óstjórntækur.