Kennsla í blaðamennsku í Bandaríkjunum felst í að kenna á töflureikna og gagnagrunna, svo að blaðamenn geti keyrt saman upplýsingar úr ótal áttum. Hér er slíkt harðlega bannað og varðar sjálfsagt við lög og svokallaða friðhelgi einkalífsins, sem nær út um allar trissur, þótt hennar sé ekki getið í stjórnarskránni. Enda verður að segja þann bitra sannleika, að engir fjölmiðlar í heiminum komast með tærnar, þar sem bandarísk dagblöð hafa hælana. Og íslenzkir fjölmiðlar draga auðvitað dám af þeim félagslega rétttrúnaði sem við höfum erft frá einveldistímanum: Lok, lok og læs.
