Kennitalan þín er leyndó

Punktar

Samkvæmt lögum og Persónuvernd er kennitalan viðkvæm eign þín, sem aðrir mega ekki vita. Hún jafnast á við reykingar þínar heima hjá þér, undarlega kynóra, val þitt í kosningum. Kennitöluleyndin er í þágu þeirra, sem hafa skuggaleg fjármál, þurfa að vaska peninga eða svíkja undan skatti. Hún er angi af leyndó hugarfari, sem tröllriðið hefur samfélaginu og komið þjóðinni á hausinn. Hverjum dettur í alvörunni í hug, að kennitalan þurfi að vera leyndó? Auðvitað þeim, sem þurfa frið við fjárglæfra sínum. Kominn er tími til að hætta þessu rugli og gefa kennitölur frjálsar. Lifi gegnsæið.