Samfylkingunni er um að kenna, að hefnd kerfisins á búsáhaldabyltingunni er komin út í ógöngur. Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir er óhæf í starfi forseta Alþingis. Sem slík átti hún að veita farveg fyrir reiði skrifstofustjórans utan málaferla. Það gerði hún ekki, enda kann hún ekki diplómasíu. Því er héraðsdómur Reykjavíkur orðinn kengúrudómstóll. Þar hafa forpokaðir dómarar nánast lokað réttarhaldi fyrir öðrum en greindarskertum löggum í dulargervi. Tugir óþarfra löggumanna eru hafðir á alltof háu kaupi við að fylla ganga kengúrudómstólsins. Samfylkingin ber ábyrgð á Ástu Ragnheiði og ástandinu.
