Kasta steinum úr glerhúsi

Punktar

Þjóðaratkvæði Svissara um bann við bænaturnum múslima sýnir, hversu hált er að láta fólkið ráða ferðinni. Þröngsýni og ofstæki verða þá oft útkoman. Hins vegar geta ríki og þjóðir múslima ekki kvartað. Reyndu bara að byggja kristna kirkju í tiltölulega hófsömu múslimalandi á borð við Egyptaland. Þú færð það ekki. Samt amast Egyptar við niðurstöðunni í Sviss. Það sýnir, að vandamál bjálkans í eigin auga finnst víðar en í biblíunni. Það broslega er svo, að múslimar hneigjast að mælingum á mismun siðferðis og veruleika hjá vestrænum ríkjum. En eru ófærir um að stunda slíkar mælingar heima hjá sér.