Ríkisstjórnir Sjálfstæðisflokksins misnotuðu veitingavaldið, tróðu dindlum flokksins í ýmis embætti. Eitt fyrsta verkefni vinstri ríkisstjórnar hlýtur að vera að losa þjóðfélagið við þá byrði. Kvígildi Flokksins eiga að vera á kostnað Flokksins, ekki fólksins. En ríkisstjórnin er því miður svo roluleg, að hún kann ekki að skúra. Tvö kvígildi eru enn í stöðum ráðuneytisstjóra, ríkislögreglustjóri hefur ekki enn verið lagður niður. Allt er eins og áður var, jafnvel embætti Þjóðleikhússtjóra. Ég er alls ekki að tala um, að vinstri kvígildi eigi að koma í stað hægri kvígilda. Bara brúklegt fólk.
