“Er það virkilega svo, að þetta sé ekki öllum ljóst.” Hroki forsætisráðherra ríður ekki við einteyming. Menn hafa verið að kvarta um, að ráðagerðir um lántökur séu úr öllu hófi. Hún heldur, að slíkt þurfi ekki að ræða. Alvitur Jóhanna muni við næstu endurskoðun sjá, hversu mikið þurfi af lánum og lækka ráðagerðir að því marki. Umræða um lántökur sé því óþörf eins og lýðræðið. Mönnum eigi að vera ljóst, að Jóhanna hafi tök á málum. Dæmigerð Jóhanna út úr kú. Hún er ekki starfi sínu vaxin. Sprengdi næstum stjórnina í síðustu viku, þegar hún rak Ögmund. Varð síðan að bakka út úr ágreiningsefninu.
