Illa uppdregin þjóð

Punktar

Prófaðu að kvarta við mann, sem leggur í stæði fatlaðra. Þú færð gusu af fúkyrðum. Prófaður að kvarta við konu, sem sigar lausum hundi á varpið í Gróttu. Þú færð gusu af fúkyrðum. Hvergi í nálægum löndum er annað eins safn af sjálfhverfu og illa uppdregnu fólki, sem kann fáa mannasiði. Veður um án þess að skeyta um samfélagið. Þannig fólk stundaði fræga fjárglæfra, sem settu okkur á hausinn. Þannig var Davíð Oddsson, sem stjórnaði ríkinu með reiðiköstum og ofsóknum. Hann var elskaður hér á landi, en kollegar hans í útlöndum forðuðust hann. Davíð hentaði illa uppdregnu samfélagi á Íslandi.