Hyde lak í Jekyll

Punktar

Þá er það upplýst. Mr. Hyde lak í Dr. Jekyll, sem birti lekann í DV. Herramenn þessir eru samlokur, sem halda ekki neinu leyndu hvor fyrir öðrum. Um helgina voru svo allir, ekki bara innvígðir,  á fullu við að finna nýjustu sniðgöngur í dansi um hina verðlausu krónu. Sjálfstæðisflokknum var að vísu miður skemmt, enda kostaði málið fyrsta sunnudagsfund alþingis í sögu lýðveldisins. Raunar er því haldið fram, að Mr. Hyde og Dr. Jekyll séu einn og sami maður. Fól og hvers manns hugljúfi í einum manni. Sú sé skýringin á, hversu sjaldan Mr. Hyde sést á fótum. Farsælla sé að hafa Dr. Jekyll sem oftast sýnilegan, það ljúfa gæðablóð.