Hvaða aðstoð er hafnað?

Punktar

Alþjóða gjaldeyrissjóðurinn hefur ekki lánað Íslandi neina peninga í átta mánuði. Ekki heldur Norðurlönd. Samt eru ýmsir erlendir bjánar að vara okkur við afleiðingum þess að hafna aðstoð sjóðsins. Hvaða aðstoð? Paul Rawkins hjá Fitch Ratings hefur áhyggjur af andúð Íslendinga á sjóðnum. Sama segir David Carey hjá Efnahags- og framfarastofnuninni. Segir ríkissjóð þurfa lán frá sjóðnum. Við höfum komizt af án slíks láns í átta mánuði. Því ekki átta mánuði í viðbót eða átta ár? Því skyldum við teygja okkur langt eftir láni, sem ekki hefur komið og virðist ekki munu koma í fyrirsjáanlegri framtíð?