Hurðarás um öxl

Punktar

Fjölmiðlar eru fullir af lýsingum fólks á slæmri skuldastöðu. Oftast vantar nánari skýringar á orsökum vandans. Var fólk að kaupa of stóra íbúð eða of fínan bíl? Var fólkið í eðlilegum farvegi með fjármálin eða var það að reisa sér hurðarás um öxl? Þótt skjaldborg megi slá um fátæklinga samfélagsins, er útilokað að ríkið geti séð um alla. Ekki er hlutverk þess að slá skjaldborg um millistéttarfólk, sem býr í raðhúsi og ekur á dýrum gerðum bíla. Hlutverk ríkisins er ekki að bjarga fólki, sem reisir sér hurðarás um öxl. Það verður bara gjaldþrota eins og slíkir hafa alltaf gert.