Hún hló þá – grætur nú

Punktar

Sveinbjörg Birna grét ekki í baráttunni, þegar aðdáendur Anders Breivik lýstu stuðningi við hana. Grét ekki heldur, er hún taldi 2000-3000 atkvæði þeirra. Geislaði af gleði og gaf í rasismann í stað þess að dempa. „Á meðan við erum með þjóðkirkju eigum við ekki að úthluta lóðum undir hús eins og moskur.“ Siðblind keyrði hún umræðu um skipulagið út af sporinu. En nú grætur hún út vorkunn í sjónvarpi hjá Birni Inga. Sem áður grét sjálfur á flótta úr pólitík Framsóknar, eins og Finndu-Finnur gerði líka. Rasistinn flaggar börnum sínum, sparkar í börn múslima. Sveinbjörg á að iðrast, biðjast afsökunar, ekki væla út vorkunn eins og aumingi.