Hryðjuverka-Valitor

Punktar

Stöðva þarf rekstur greiðslukortafyrirtækisins Valitor. Komið hefur í ljós, að þetta er hryðjuverka-fyrirtæki, sem tekur að sér að reyna að koma rekstri á hvolf. Ekki er þolandi, að einhver stórpólitískur Viðar Þorkelsson sitji tímunum saman við að flokka fyrirtæki í “Ku Klux Klan er gott”, “DataCell er vont” og svo framvegis. Gera verður þá kröfu til Eurocard og Visa, að þau skipti ekki við hættulegt fyrirtæki, sem á morgun getur neitað að afhenda þér innkomnar greiðslur, samkvæmt pöntun hryðjuverka-ríkis. Ekkert pláss er í lýðræði fyrir terror af því tagi. Burt með pólitík og hryðjuverk Valitor.