Hraðara fylgishrun

Punktar

Skoðanakannanir Capacent sýna hraðara fylgishrun þessarar ríkisstjórnar en forverans. Blekktir kjósendur Framsóknar yfirgefa hana í hrönnum og neita jafnvel að hafa kosið Nígeríubréfin. Enda fer stjórnin verr af stað fyrstu mánuðina en sú fyrri, sem afrekaði ýmislegt á sama tíma. Skammur ferill nýju stjórnarinnar hefur markast af auknum fríðindum til auðmagnsins, einkum til kvótagreifa. Hins vegar hafa vandræði almennings verið sett í nefndir, sem sumar hafa ekki enn tekið til starfa. Smám saman vakna kjósendur Framsóknar og eru farnir að nudda stírurnar úr augunum. Og átta sig á afglöpum sínum.