Hjartadrottningin

Punktar

Hirðspil hjartadrottningarinnar í Undralandi reyna að telja Lísum landsins trú um, að eðlilega hafi verið staðið að krokketi ríkisráðsfundarins fáheyrða. Fer þar fremst Morgunblaðið, sem að gömlum sið er jafn hlutdrægt í forsíðufréttafyrirsögnum og það er sannfært í leiðurum. … Hjartadrottningin fer að venju á kostum. Hún hefur breytt hirðsiðabókinni á þann hátt, að nú er ekki lengur talað um hæstvirtan forseta Íslands, heldur blessaðan forsetann. …