Helguvíkur-óðagotið

Punktar

Allar eru nefndirnar á sama máli. Suðvesturlínan á að liggja yfir vatnsból Reykjavíkursvæðisins og getur haft þar alvarleg áhrif. Það segja umhverfis- og samgöngusvið Reykjavíkur, heilbrigðisnefnd Reykjavíkur, Skipulagsstofnun og heilbrigðiseftirlit Hafnarfjarðar og Kópavogssvæðis. Samt á að leggja línuna þarna, því að það er ódýrast. Kostnaður við orku handa Helguvík rýkur upp og má ekki við meiru. Treglega gengur að skrapa lán og þau bera hærri vexti en ráð var fyrir gert. Orkuveitan er komin með 5,5 milljarða á bakið af skammtíma-okurlánum vegna óðagots hennar fyrir tíð ríkisstjórnarinnar.