Heimur íslams logar

Punktar

Öfgar magnast í íslam víða um heim, ekki bara í Sýrlandi og Írak. Hryðjuverk magnast ekki bara í París og Kaupmannahöfn. Heilir heimshlutar loga af völdum öfgasinnaðra múslima. Sjáið Norður-Afríku frá Líbíu til Nígeríu. Út um allt er fólk afhöfðað. Áður hófsöm ríki eins og Egyptaland og Tyrkland íslamiserast hratt. Veraldlega sinnaðir arftakar Kemals Atatürk viku fyrir trúarofstæki hins spillta Erdogans. Spilling magnast, viðskiptabófar fela sig bakvið íslam, græða á tengslum við moskur. Istanbul var til skamms tíma evrópsk borg að mestu, en núna eru kolsvartar slæður í meirihluta á Sultanahmet. Nýjar miðaldir nálgast.