Heimsins mesta skopparakringla

Punktar

Við skulum skoða aðild að Evrópu og við skulum alls ekki skoða hana. Við skulum fara dómstólaleiðina í IceSave og við skulum alls ekki fara hana. Við skulum búa til fyrirvara við IceSave samninginn og við skulum algerlega hafna þessum fyrirvörum. Við heimtum skilyrðislaust þjóðaratkvæðagreiðslu um IceSave lögin og við viljum komast hjá þessari atkvæðagreiðslu. Við skulum segja já og við skulum segja nei, nei, nei. Þetta er í stuttu máli pólitísk stefnuyfirlýsing Bjarna Benediktssonar á aðeins einu ári. Hann er heimsins mesta skopparakringla. Engin furða, þótt þriðjungur kjósenda vilji hann.