Hefðbundin krossferð

Punktar

Ferill hryðjuverka annars vegar og árása engilsaxa í þriðja heiminum hins vegar ber sameiginlega að einni niðurstöðu, almennu stríði milli engilsaxa og múslima, sem háð er á mörgum vígstöðum, nánast alls staðar og hvergi. Með hverjum nýjum snúningi er þyngra að snúa við og finna sáttaferil. Bush forseti skrúfar vandannn upp og kallaði stríðið á sínum tíma “krossferð”. Þau ummæli hafa ekki verið endurtekin, en segja eigi að síður þann dapra sannleika, að við stefnum í heimsstyrjöld, sem enginn getur unnið. Ríki Evrópu geta svo valið, hvort þau taka þátt í þráteflinu eða segja pass.