Hauslausir boltamenn

Punktar

Mér er sem ég sæi froðufellingarnar, ef fyrirliði brezks landsliðs kallaði Íslendinga upp til hópa þjófa. Rétt fyrir landsleik. Eins og Íslendingurinn kallaði meirihluta Albana glæpamenn. Ætli menn hefðu ekki heimtað eitthvað meira en daufa tilraun forustu knattspyrnunnar til að kaupa sér frið. Eins og eftir klámbúluferðina þeirra frægu. Samt má rökstyðja, að óeðlilega mikið af Íslendingum séu þjófar, samanber IceSave og útrásina. Við höfum ekki efni á hroka. En íslenzki boltamenn hafa ekki andlegt þrek í svona vanda. Enda segir þýzka spakmælið: “Was man nicht im Kopf hat, hat man in den Beinen!”