Hamfarir drekans

Punktar

Sjálfstæðisflokkurinn mun ekki jafna sig meðan eldspúandi dreki þvingar hann til hlýðni. Davíð Oddsson var orðinn skapstyggur löngu fyrir frægu veikindin 2004, þegar hann lofaði nýjum hátæknispítala. Var áður farinn að leggja menn í einelti, samanber Styrmir Gunnarsson, sem síðan gerðist honum undirgefinn. Á landsfundi flokksins 2009 yfirtók DO fundinn, sem hafði ætlað að samþykkja „litprentaðan langhund“ um endurreisn þjóðarinnar. Í staðinn klöppuðu menn stjórnlaust fyrir skítkasti Davíðs í allar áttir. Sama ár varð hann ritstjóri Mogga, hefur síðan farið hamförum. Flokksformaðurinn er bara lík í lestinni.