Hallæri á Húsavík

Punktar

Húsvíkingar þreytast ekki á að verða sér til skammar. Frægt var málið, þegar ung stúlka hraktist úr bænum fyrir að „láta“ þekktan íþróttaplebba á staðnum nauðga sér. Húsvíkingar mynduðu breiðfylkingu um nauðgarann. Nú hefur þorpið hrakið burt eina nothæfa matstaðinn. Pallurinn hjá Völundi Snæ hefur verið hrakinn úr rekstri, því að þorpssjóður þénaði of lítið á tjaldi. Matstaðurinn var nefnilega rekinn í tjaldi við aðalgötuna. Engu tauti verður komið við staðaryfirvöld. Þau halda, að túristar séu sjálfgefin bráð, þótt þjónusta sé lítil og matur vondur. Halda, að túristarnir sætti sig við Naustið eða Sölku.