Hafna íslenzka hatrinu

Punktar

ÞETTA er ógeð. Hálf íslenzka þjóðin er meira eða minna rugluð, þrúguð rasisma og fasisma. Hálf þjóðin vill ekki, að hér sé reist moska, hvað þá að múslimar fái fría lóð. Rugl þjóðarinnar nær líka til annarra trúarbragða. Þriðjungur vill ekki, að orthódox kristnir fái að reisa kirkju, fleiri en þeir, sem vilja leyfa. Engin furða, þótt Framsókn hafi gengið vel í kosningunum í vor, þegar hálf þjóðin er í keng. Ég vil ekki vera hluti þjóðar, sem er svo forstokkuð, að hún vill banna fólki að reisa sér guðshús. Enda er langt síðan ég hætti að líta á mig sem Íslending. Ég er Evrópumaður, hluti af grísk-rómverskri arfleið og hafna íslenzka hatrinu.