Ríkisstjórnin reynir að rýja þá fátæku, en hlífir þeim ríku. Dæmin eru ýmis. Útrásarvíkingar og sápukúlumenn fá enn að reka fyrirtækin. Hafa sýnt, að þeir eru ófærir um slíkt. Samt halda ríkisbankarnir verndarhendi yfir þeim. Því þarf að linna, svo að fátækir sjái, að ríkir séu líka í sigti. Stjórnin leyfir skilanefndum gömlu bankanna og stjórnendum nýju bankanna að stríða gegn stjórnarstefnunni að þessu og ýmsu öðru leyti. Það er lágmarkskrafa, að sjónhverfingamennirnir og víkingarnir séu reknir úr stólum og úr landi. Áður en farið er að kvelja alþýðuna. Því telst þetta hægri sinnuð ríkisstjórn.
