Ekki önnur vinnubrögð í máli Glitnis en Kaupþings, segir Ólafur Þór Hauksson sérstakur. Ekki hafi þurft gæzluvarðhald yfir valdamönnum Glitnis eins og Kaupþings áður. Magnús Guðmundsson sat í tólf daga gæzluvarðhaldi og Ingólfur Helgason í viku. Hins vegar er enginn settur í gæzluvarðhald vegna Glitnis. Þetta getur verið skiljanlegt. En ekki er skiljanleg þögnin um Landsbankann. Hvernig stendur á, að hvorki gengur né rekur með rannsókn á Landsbankanum? Og hvernig stendur á, að engar aðgerðir eru fyrir erlendum dómstólum vegna Landsbankans? Grunsamleg verndarhönd yfir Landsbankaliðinu.