Er þetta bara grín? Af hverju sitja Björgólfsfeðgar ekki í steininum? Af hverju sitja Bakkabræður og Wernerssynir ekki í steininum? Af hverju sitja Hannes Smárason og Ólafur Ólafsson ekki í steininum? Af hverju situr Jón Ásgeir Jóhannesson ekki í steininum? Af hverju sitja ekki allir bankastjórar gömlu bankanna í steininum? Og af hverju er verið að hossa sjálfum höfuðpaur hrunsins. Sem fréttaritið Time telur vera einn af 25 mestu vandræðamönnum heimsins. Erum ekki fyrr búin að losna við Davíð Oddsson úr Seðlabankanum, þegar hann dúkkar tvíefldur upp á Mogganum. Er þetta allt grín eða martröð?
