Grikkland verður gjaldþrota

Punktar

Hrun Grikklands er ekki Papandreou að kenna frekar en davíðshrunið á Íslandi er Jóhönnu að kenna. Hann tók við stjórninni af spilltri hægri stjórn, sem bar ábyrgðina. Eins og Davíð og Geir báru ábyrgðina hér. Munur Grikklands og annarra ríkja Evrópu er ekki óhóflegt ríkisbákn, heldur léleg skattheimta. Grikkir svindla almennt undan skatti og komast upp með það. Neita þar á ofan að bera ábyrgð á hruninu. Eins og hér. Þeim mun takast að svæla Papandreou út og koma á greiðslufalli og gjaldþroti ríkisins. Við því er fátt að gera. Lánardrottnar Grikklands neyðast að lokum til að afskrifa heimskulegu lánin.