Græna átakið

Greinar

“Fyrstu kröfur fólks eru um “brýnustu” nauðsynjar í aðbúnaði, svo sem atvinnu, húsnæði, hita, rafmagn. og samgöngukerfi. Að þessu fengnu verður æ brýnni þörfin á umbótum í því umhverfi, sem áður taldist ekki til lífsnauðsynja”, segir meðal annars í forsendum áætlunar um útivist og umhverfi, sem Birgir Ísleifur Gunnarsson borgarstjóri hefur lagt fram.

Í forsendum áætlunarinnar segir einnig: “Sífelld stækkun borga og þéttbýlis, ásamt auknum hraða, innisetum og ópersónulegri samskiptum manna milli þrengir stöðugt að fólki og kallar á úrbætur. Borg þarf að hafa þá fjölbreytni í umhverfi og sveigjanleika til að bera, að hver einstaklingur geti sinnt þar hinum ólíkustu athafnaþáttum”.

Áætlunin gerir ráð fyrir stórkostlegu átaki Reykjavíkur í útivistar: og umhverfismálum á næsta áratug. Henni fylgir framkvæmdaáætlun um fyrri hluta tímabilsins. Samkvæmt henni er gert ráð fyrir, að borgin verji um 650 milljónum króna í þessu skyni á næstu fjórum árum og verði þessi róttæka áætlun þá komin vel á veg.

Gert er ráð fyrir, að hraðað verði frágangi allra spildna innan og milli íbúðahverfa, ekki aðeins þeirra, sem borgin sjálf hefur umráð yfir. Einnig verði samið við ríkið og aðra umráðaaðila um frágang svæða, sem eru á þeirra vegum, og taki borgin að sér framkvæmdir eftir þörfum.

Ljúka á gerð gangstétta og ræktun meðfram götum. Þar að auki verði stefnt að frekari að. skilnaði bílaumferðar og umferðar gangandi fólks og hjólreiðamanna með því að leggja sérstaka göngu. og hjólreiðastíga um alla borgina þvera og endilanga. Þessir stígar eiga að mynda sérstakt samgöngukerfi með brúm yfir götur eða göngum undir þær. Ennfremur verði lagðar sérstakar reiðgötur um borgina.

Lögð er sérstök áherzla á að gæða útivistarsvæði borgarinnar lífi. Þar verði margháttuð starfsemi og frístundaiðja fyrir fólk á öllum aldri. Til dæmis verði ræktaður golfvöllur í Laugarnesi, komið upp minigolfi á Miklatúni, tennisvelli vestan Álfheima, svo að dæmi séu nefnd. Jafnframt verði reynt að efla borgarbraginn með flutningi lista og skemmtiefnis á torgum og útivistarsvæðum borgarinnar..Einnig verði lista- og handiðnaðarmönnum gefin vinnuaðstaða í Árbæjarhúsunum.

Gert er ráð fyrir aðstöðu fyrir vélbáta, hraðbáta og stærri seglbáta sunnan megin í Geldinganesi og aðstöðu fyrir minni seglbáta norðan nessins. Slík aðstaða verði einnig í Nauthólsvík og ennfremur verði stórbætt aðstaða fyrir fiskitrillur í,Reykjavíkurhöfn.

Sérstaklega verði tekin fyrir stór útivistarsvæði, fyrst Ártúnssvæðið við Elliðaár. Það svæði á að fullgera á næstu fjórum árum og hafa þar aðstöðu til skíðaiðkana, sunds, silungsveiði í Vesturál, skautahlaups og veitinga, svo að dæmi séu nefnd, auk þess sem svæðið verði ræktað og klætt skógi.

Þessar ráðagerðir eru ein ástæðan fyrir því, að Reykvíkingar segja Birgi Ísleif vera réttan mann með rétta stefnu á réttum tíma.

Jónas Kristjánsson

Vísir