Græðgin er taumlaus

Punktar

Engan veginn gengur upp, að ofurlaunaður skilanefndarmaður láti stela fyrir sig Spánarferð á kostnað gamlingjanna á Eir. Jóhannes Rúnar Jóhannesson er í skilanefnd Kaupþings. I hópi hinna gráðugustu, sem stunda sjálftöku á kaupi, langt umfram íslenzkan veruleika. Í ofanálag telur hann við hæfi að taka við þýfi úr hendi tengdaföður. Séra Sigurður Helgi Guðmundsson bókaði skattfría lögfræðiaðstoð. Milli þess sem hann greiddi konu sinni og dóttur kaup af fé gamlingjanna. Því miður varð þjóðfélagið slíkt, að menn trylltust af græðgi. Komast enn upp með ruglið, þótt fjögur ár séu liðin frá hruni græðginnar.