Veðurspáin um helgina var slík, að ekki væri hundi út sigandi. Varað var við fárviðri. Samt fór ferðaþjónusta með erlenda ferðamenn upp á Langjökul með afleiðingum, sem hefðu getað orðið skelfilegar. 300 manna björgunarútkall. Í hádegisfréttum bullaði stjórnandinn um veðurfréttir. Minnti á fararstjórann, sem fór með ferðamenn upp á Vatnajökul eftir að hafa fundið þolanlega spá erlenda. Þessir ferðaþjónustumenn eru voðalegir, skaða Ísland sem ferðaland. Ríkisvaldið þarf að koma böndum á angurgapana og taka af þeim ferðaleyfið. Það er eins og enn megi allt hér á gráðuga Íslandi, ekki bara í bönkunum.
