Gott að hlusta ekki á Finn

Punktar

Feginn er ég, að ríkisstjórnin hefur ekki tekið mark á athugasemdum Finns Oddssonar. Hann er framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs, sem frægt er fyrir allra tíma rugluðustu athugasemdir. Viðskiptaráð keyrði áfram græðgishagfræðina umhverfis bankana, sem óku á ofurhraða á klettavegg. Einföld aðferð við að stjórna landinu vel er að gera allt öfugt við ráð Finns og Viðskiptaráðs. Í Mogga í dag kvartar hann yfir samráðaleysi. Þótt það standi bara í Mogga vil ég gera ráð fyrir, að rétt sé sagt frá harmi hans. Enn ruglar hann um, að skattar minnki skattstofna. Öll stjórnun batnar við að hlusta ekki á Finn.