Gjöfum sínum líkir

Punktar

Nei-sinnar hafa lengi auglýst grimmt, til dæmis á flettiskiltum. Ekki hefur mikið verið kvartað yfir því eða leitt getgátum að borgunarmönnum. Loksins núna eru já-sinnar byrjaðir að auglýsa og þá fer allt á hvolf. Þeir eru sakaðir um að þiggja greiðslur frá Evrópusambandinu. Og frá Björgólfi Thor Björgólfssyni gegnum Vilhjálm Þorsteinsson. Trúlega telja nei-menn líka, að stjórnlagaráðið sé þannig óbeint fjármagnað af Björgólfi. Enginn flugufótur er færður fyrir neinum getgátum. Þær eru bara í samræmi við aðrar röksemdir nei-sinna. Þeir skrifa um landráð og aumingjaskap. Eru gjöfum sínum líkir.