Getuleysi fyrir getulausa

Punktar

Margt er það, sem Íslendingar fyrir Íslendinga geta ekki. Frægt er, þegar upp komst, að strákar geta ekki lesið sér til gagns. Í nótt kom í ljós, að fólk getur ekki heldur talið atkvæði sér til gagns. Og getur ekki heldur stýrt kosningavöku í sjónvarpi sér til gagns. Við verðum að fá eftirlitsnefnd frá öryggisstofnun Evrópu framvegis til að telja hér atkvæði. Líka útlendinga til að stjórna tæknimálum sjónvarps. Þurfum helzt af öllu útlendinga til að lesa fyrir okkur. Þannig er nú komið fyrir þessum heimsku og drýldnu Íslendingum. Geta bara vafið um sig fánanum og öskrað slagorðin „Ísland fyrir Íslendinga“.