Getuleysi og hæfileikaskortur einkennir pólitíkusa ríkisstjórnarflokkanna. Hálf ríkisstjórnin er óhæf til starfa, einnig forseti Alþingis, formenn nefnda Alþingis og þingflokksformenn ríkisstjórnarflokkanna. Ráða ekki við eitt eða neitt. Sjálfstæðisflokkurinn veður uppi í linnulausu morfís-blaðri. Alþingi botnfrysi, ef þar væri einn til viðbótar Birgi Ármannssyni og Sigurði Kára Kristjánssyni. Þessir tveir stjórna, ekki ríkisstjórnin og stuðningslið hennar. Sorglegt er að horfa á getulaust og hæfileikasnautt lið reyna árangurslaust að stjórna framvindu stjórnmála. Nýjar kosningar, takk.
