Dag eftir dag hefur Geir Haarde sagt, að ástandið sé viðráðanlegt. Svo er ekki. Ísland er hatað land í mörgum löndum Evrópu. Vaxandi þrýstingur er á toppgreiðslu af hálfu Íslands, ekki bara greiðslu einnar upphæðar á hvern bankareikning. Að baki kröfunnar er hinn illræmdi Alþjóða gjaldeyrissjóður, sem telur slíkar greiðslur æðri en líf og tilvera okkar. Við eigum stuðning Vesturlanda ekki vísan í heimi, sem snýst um fé, ekki um fólk. Gjaldeyrir úr frjálsum viðskiptum okkar er enn frystur. Terroristalög gilda enn. Við þurfum ekki bara lán frá Rússum, við þurfum líka vöruskipti við þá.
